Markmið stjórnvalda og AGS hafa ekki náðst Haraldur Guðmundsson skrifar 10. janúar 2014 10:00 Þingið samþykkti fyrir áramót fjáraukalög fyrir árið 2013 og fjárlög fyrir árið 2014. Mynd/GVA.
Hagfræðideild Landsbankans bendir í dag á að niðurstaða fjárlaganna og áætlanir næstu ára eru langt frá markmiðum samstarfsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) frá árinu 2011. Þar var gert ráð fyrir að heildarjöfnuður ársins 2014 yrði sautján milljarðar króna og um 32 milljarðar á árinu 2015. „Upphafleg markmið samstarfsáætlunar stjórnvalda og AGS hafa ekki náðst, en vonandi fer þróunin að snúast til réttrar áttar,“ segir í Hagsjá Landsbankans, sem í dag ber fyrirsögnina Staða ríkisfjármála áfram erfið. Hagfræðideildin bendir þar á að saga síðustu ára hafi sýnt að langt sé á milli áforma í fjárlögum og endanlegrar niðurstöðu. Því þurfi að halda vel á spöðunum ef þær áætlanir eigi að ganga eftir, en fjárlög fyrir árið 2014 voru samþykkt með afgangi upp á um 900 milljónir króna. „Það hefur verið nær ófrávíkjanleg regla að útgjöld hafi aukist frá því sem gert er ráð fyrir í fjárlögum og nemur umframeyðslan 12% að meðaltali undanfarin 10 ár. Boðað hefur verið að frumvarp um opinber fjármál verði lagt fram á þessu þingi þar sem leitast yrði við að styrkja allt fjárlagaferlið og umgjörð fjárlaga. Vonandi eru ríkisfjármálin á réttri leið.“
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Fleiri fréttir Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Sjá meira