Viðskipti innlent

Arion Banki með lánshæfismatið BB+

Haraldur Guðmundsson skrifar
S&P telur Arion banka vera mikilvægan fyrir fjármálastöðugleika á Íslandi, samkvæmt tilkynningu bankans.
S&P telur Arion banka vera mikilvægan fyrir fjármálastöðugleika á Íslandi, samkvæmt tilkynningu bankans. Mynd/Pjetur
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) hefur gefið Arion Banka lánshæfismatið BB+ með stöðugum horfum. Bankinn greinir frá þessu í fréttatilkynningu.  

Þar segir að mat S&P sé byggt á traustri stöðu bankans á innlendum markaði. Bankinn hafi aukið markaðshlutdeild sína á íbúðalánamarkaði á undanförnum árum og starfsemi hans skiptist nú jafnt milli einstaklings- og fyrirtækjaviðskipta. Hins vegar sé bankinn lítill í alþjóðlegu samhengi.

„S&P telur dreifingu tekna bankans góða en um 60% tekna eru hreinar vaxtatekjur og 25% eru vegna þóknana,“ segir í tilkynningunni.

Mat S&P byggist einnig á því að eiginfjárstaða bankans er sterk og góð arðsemi af rekstri hans. Gert er ráð fyrir að eiginfjárstaðan batni enn frekar í takt við frekari sölu óskráðra eigna í félögum sem bankinn hefur þurft að taka yfir á undanförnum árum,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að áhætta í rekstri bankans sé í meðallagi og að endurskipulagningu lánasafns hans sé að mestu leyti lokið.

„Fjármögnun bankans er einnig í meðallagi. Þar vegast á stöðug langtímafjármögnun bankans í samanburði við aðra banka og hættan af mögulegu útflæði innstæðna. Litlar endurgreiðslur eru af langtímalánum til ársins 2020, sem er styrkleikamerki.

Lausafjárstaða bankans er sterk að mati S&P og er hann með sterka þekju lauss fjár til að standa við greiðslur af skuldum. Auk þess á bankinn laust fé og lausafjáreignir í formi verðbréfa sem nægja til að greiða út allar innstæður í erlendum myntum.

S&P telur Arion banka vera mikilvægan fyrir fjármálastöðugleika á Íslandi. Þrátt fyrir það telur matsfyrirtækið að ekki sé að vænta stuðnings frá íslenska ríkinu ef kæmi til fjármálalegs óstöðugleika.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningu að lánshæfiseinkunnin sé góð einkunn þegar tekið sé mið af lánshæfismati íslenska ríkisins. Einkunnin muni bæta aðgengi bankans að erlendum fjármálamörkuðum.  

„Það gerir okkur vonandi kleift að bjóða viðskiptavinum, sem þess þurfa, erlenda fjármögnun á hagstæðari kjörum. Jafnframt er ljóst að bætt aðgengi Arion banka og annarra íslenskra fjármálafyrirtækja að alþjóðlegum lánsfjármörkuðum er ein af forsendum þess að hægt verði að aflétta gjaldeyrishöftum og það er einnig í því ljósi sem við teljum þetta jákvætt skref,“ segir Höskuldur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×