Viðskipti innlent

Undirrituðu samning um kísilmálmverksmiðju

Haraldur Guðmundsson skrifar
Helguvík.
Helguvík. Mynd/GVA.
Thorsil ehf. og Mannvit hf. skrifuðu í dag undir samning um hönnun kísilmálmverksmiðju Thorsil sem rísa á í Helguvík. Mannvit og norska verkfræðistofan Norconsult AS munu hafa umsjón með hönnun, útboðum og byggingu verksmiðjunnar.

Verðmæti fyrsta áfanga samningsins er 508 milljónir króna og áætlað er að byggingaframkvæmdir hefjist síðar á þessu ári, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um þrjú hundruð manns koma til með að starfa við byggingu verksmiðjunnar og er stefnt að því að framleiðsla hefjist á þriðja ársfjórðungi 2016. 

„Thorsil og Reykjanesbær skrifuðu í október síðastliðnum undir samning um skilmála vegna sextán hektara lóðar undir verksmiðjuna sem Thorsil hyggst reisa á iðnaðar- og hafnarsvæðinu í Helguvík. Vinna við umhverfismat stendur yfir og áætlað er að byggingarframkvæmdir hefjist síðar á þessu ári. Þá skapast um 160 ný störf vegna starfseminnar auk afleiddra starfa, s.s. við flutninga, viðhald, verkfræðiþjónustu og fleira. Áætluð ársframleiðsla er um 54 þúsund tonn af kísilmálmi.

Samkomulag um skilmála hefur verið gert við Landsvirkjun um kaup á 87 MW af raforku en gert er ráð fyrir að orkuþörf fyrirtækisins verði um 730 GWst á ári. Langtímasamningar um sölu á rúmlega helmingi af framleiðslu verksmiðjunnar til rótgróinna alþjóðlegra framleiðslufyrirtækja eru á lokastigi,“ segir í tilkynningu vegna samningsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×