Viðskipti innlent

Hallinn um 28 milljarðar

Haraldur Guðmundsson skrifar
Tekjur ríkissjóðs jukust um 38,4 milljarða milli ára.
Tekjur ríkissjóðs jukust um 38,4 milljarða milli ára.
Fjármálaráðuneytið hefur birt greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2013. Í samantektinni segir að staða handbærs fjár frá rekstri hafi batnað miðað við sama tímabil 2012 og verið neikvætt um 28,1 milljarða króna en neikvætt um 51,1 milljarða árið 2012.

Tekjur jukust um 38,4 milljarða milli ára og gjöld um 22,3 milljarða króna. Viðskiptahreyfingar höfðu jákvæð áhrif á handbært fé um tæpa fjóra milljarða króna á móti neikvæðum áhrifum 2012 um rúma þrjá milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×