Viðskipti innlent

Kaupsamningum fjölgaði milli vikna

Haraldur Guðmundsson skrifar
Um 8.300 kaupsamningum var þinglýst á landinu öllu árið 2013.
Um 8.300 kaupsamningum var þinglýst á landinu öllu árið 2013. Vísir/Vilhelm.
155 kaupsamningum um fasteignir var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 3. janúar til og með 9. janúar samanborið við 144 samninga í vikunni á undan.

Þar af voru 112 samningar um eignir í fjölbýli, 27 samningar um sérbýli og sextán um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 8.986 milljónir króna, samanborið við 4.736 milljónir í vikunni á undan, og meðalupphæð á hvern samning hljóðaði upp á 58 milljónir króna.

Á sama tíma var átta kaupsamningum þinglýst annars vegar á Suðurnesjum og hins vegar á Árborgarsvæðinu og tveimur á Akureyri. 

Frá þessu er greint á vef Þjóðskrár Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×