Viðskipti innlent

Annað stærsta fasteignafélag landsins verður til

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hið nýja fasteignafélag verður það næst stærsta á landinu.
Hið nýja fasteignafélag verður það næst stærsta á landinu. Mynd/úr einkasafni
Á föstudaginn verður haldinn hluthafafundur hjá EIK fasteignafélagi, þar sem tillaga um hlutafjáraukningu í tengslum við kaup Eikar á ákveðnum eignu SMI og Landfesta verður borin undir fundinn.

Verði af kaupunum munu tilteknar eignir félaganna tveggja renna inn í Eik og verður félagið þá orðið annað stærsta fasteignafélag landsins á eftir fasteignafélaginu Reitir.

Virði fjárfestingareigna hins nýja félags verður þá um 60 milljarðar króna og verður það með um 271 þúsund leigufermetra til umráða. 

Talið er að við viðskiptin myndist tækifæri til hagræðingar, lækkunar á stjórnunarkostnaði og góðrar dreifingar leigutekna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×