Viðskipti innlent

Stýra tveimur sprotum innan Íslenska sjávarklasans

Haraldur Guðmundsson skrifar
Hús Íslenska sjávarklasans.
Hús Íslenska sjávarklasans. Vísir/GVA
Eva Rún Michelsen og Erla Ósk Pétursdóttir, starfsmenn Íslenska sjávarklasans, hafa tekið við sem framkvæmdastjórar tveggja sprota sem orðið hafa til innan klasasamstarfsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenska sjávarklasanum.

Eva Rún Michelsen og Erla Ósk Pétursdóttir.
Þar segir að Eva Rún hafi verið ráðin framkvæmdastjóri Húss Sjávarklasans ehf. Þar starfa um þrjátíu fyrirtæki af ýmsum stærðum og gerðum sem öll eiga það sameiginlegt að vera í haftengdri starfsemi. Hún er með MSc gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og hefur unnið hjá klasanum frá stofnun hans.

Erla Ósk Pétursdóttir er nýr framkvæmdastjóri Codlands ehf., sem er fullvinnslufyrirtæki sem hefur að markmiði að fullvinna sjávarafurðir í samstarfi við fyrirtæki á því sviði. Codland er nú í eigu Vísis hf. og Þorbjarnar hf. í Grindavík. Hún er með BA-gráðu í hagfræði- og tölvunarfræði frá Macalester College í Minnesota, Bandaríkjunum og hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri hjá Vísi hf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×