Viðskipti innlent

Fara fram á milljarð í bætur

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Jón Þorsteinn ásamt lögmanni fyrir héraðsdómi þegar ákæra sérstaks saksóknara var tekin fyrir.
Jón Þorsteinn ásamt lögmanni fyrir héraðsdómi þegar ákæra sérstaks saksóknara var tekin fyrir. vísir/Anton Brink
Íslandsbanki hf. krefst bóta upp á um milljarð króna af þeim Jóni Þorsteini Jónssyni, fyrrverandi stjórnarformanni sparisjóðsins og Ragnari Z. Guðjónssyni, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Byrs. Fyrirtaka málsins var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Hróbjartur Jónatansson, lögmaður Jóns Þorsteins, sagði í samtali við fréttastofu að um væri að ræða stefnu Íslandsbanka vegna kröfu til bóta á skaða sem Byr teldi sig hafa orðið fyrir. Jón Þorsteinn fer fram á sýknu annars vegar og frávísunar málsins frá dómi hins vegar. Frávísunarkrafan verður tekin fyrir í apríl.

Það sé af ýmsum ástæðum sem Jón Þorsteinn fari fram á að bótakröfunni verði vísað frá dómi. Meðal annars sé ekki gert grein fyrir því með skýrum hætti hvernig Íslandsbanki hafi orðið fyrir tjóni.

Þeir Jón Þorsteinn og Ragnar voru dæmdir með dómi Hæstaréttar í byrjun júní árið 2012 í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik. Sérstakur saksóknari ákærði þá fyrir umboðssvik í tengslum við milljarða króna lán Byr sparisjóðs til einkahlutafélagsins Exeter-holding sem notað var til að kaupa verðlaus stofnhlutabréf í sparisjóðum af Jóni Þorsteini, Ragnari og MP-banka. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×