Viðskipti innlent

Kauphöllin vísaði átján málum til FME í fyrra

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar. Fréttablaðið/Vilhelm
NASDAQ OMX Iceland, eða Kauphöllin, vísaði 18 málum til Fjármálaeftirlitsins til frekari skoðunar í fyrra, en afgreiddi samtals 63 mál.

Af þeim málafjölda afgreiddi Kauphöllin 42 mál vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði og tuttugu og eitt mál sem lutu að viðskiptum með verðbréf.

Ellefu mál vegna gruns um brot á upplýsingagjöf félaga á markaði voru afgreidd með athugasemdum, eitt með óopinberri áminnningu og 25 mál voru felld niður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×