Viðskipti innlent

Afli íslenskra skipa mikill í desember

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Egill
Heildarafli íslenskra skipa í síðastliðnum desember, metinn á föstu verði, var 13,1 prósenti meiri en í desember 2012. Í tonnum talið var hann 50.421 í mánuðinum samanborið 42.814 tonn árið 2012. Á síðasta ári öllu veiddist 4,5 prósentum meiri afli en 2012, sé hann metinn á föstu verði.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands

Botnfiskafli í desember var 33.400 tonn og jókst um 2.600 tonn frá desember 2012. Þar af var þorskaflinn tæp 19.000 tonn. Ýsuaflinn nam 3.300 tonnum sem er aukning um 521 tonn. Karfaaflinn var 5.500 tonn sem er 757 tonna aukning á milli ára og rúm 3.000 tonn veiddust af ufsa sem er samdráttur um 179 tonn á milli ára.

Alls voru veidd 15.400 tonn af uppsjávarfiski sem er tæplega 5.700 tonnum meiri afli en í desember 2012. Þá aukningu má rekja til um 10.600 tonna meiri síldarafla, sem nam tæpum 12.000 tonnum. Einnig veiddust 3.200 tonn af kolmuna sem er um 2.800 tonna aukning á milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×