Viðskipti innlent

HSu innleiðir miðlægt prentumsjónarkerfi

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Gerður Óskarsdóttir, umsjón tölvumála hjá HSu, Ómar Tryggvason verkefnastjóri sérlausna hjá Optima, Magnús Skúlason, forstjóri HSu og Herdís Þórðardóttir, innkaupastjóri HSu.
Gerður Óskarsdóttir, umsjón tölvumála hjá HSu, Ómar Tryggvason verkefnastjóri sérlausna hjá Optima, Magnús Skúlason, forstjóri HSu og Herdís Þórðardóttir, innkaupastjóri HSu.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur undirritað samning við Optima um innleiðingu á miðlægu prentumsjónarkerfi. Samningurinn nær til allra heilsugæslustöðva HSu og tekur til innleiðingar á prenturum, fjölnotatækjum og miðlægu prentumsjónarkerfi.

Í fréttatilkynningu frá Optima segir að með innleiðingu á Prentský, lausn Optima náist fram aukið hagræði, betri yfirsýn og fyrst og fremst aukið gagnaöryggi. Prentuð skjöl eru send í eina sameiginlega prentbiðröð sem síðan eru leyst út með auðkenniskorti notanda. Gera má ráð fyrir að rekstrarkostnaður á prentumhverfi Heilbrigðisstofnunarinnar lækki um 25-30% ári með innleiðingunni.

Lausnin tekur einnig yfir allt skönnunarumhverfi heilsugæslustöðvana en skönnun skjala hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár hjá fyrirtækjum og stofnunum að sögn Ómars Tryggvasonar verkefnastjóra hjá Optima. Með öflugum skönnunarhugbúnaði sé auðvelt að koma skjölum í stafrænt form og senda beint inn í hin ýmsu kerfi og gagnagrunna, með því eykst geymsluöryggi gagna til muna. Optima rekur sambærilegt umhverfi á Landspítalanum og hjá fjölda annara fyrirækja.

„Fyrirtæki eru farin að átta sig á þeim sparnaði og öryggi sem næst fram auk þess sem kerfisstjórar geta í auknum mæli einbeitt sér að kjarnastarfsemi með útvistun sem þessari,“ segir Ómar í fréttatilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×