80% færri deyja úr hjartasjúkdómum, þrátt fyrir aukna offitu Hrund Þórsdóttir skrifar 7. janúar 2014 20:00
Árið 1981 létust 247 Íslendingar á aldrinum 25 til 74 ára vegna kransæðasjúkdóma en árið 2006 voru dauðsföllin 79. Ef dánartíðnin hefði haldist óbreytt hefðu dauðsföllin árið 2006 orðið 374 svo mismunurinn er 295 manns, eða 80%. Í meðfylgjandi myndskeiði sést hvernig nýjum tilfellum kransæðastíflu hefur fækkað um 63% yfir sama tímabil. Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir að þjóðin hafi fitnað mikið og þar segir Laufey Steingrímsdóttir, prófessor í næringarfræði, neyslugleði um að kenna. „Þegar við kaupum mikið af græjum, tólum og tækjum enda þau kannski á ruslahaugunum en það sem við borðum of mikið af, sest utan á okkur,“ segir hún. Framfarir í læknisfræði og fleira hefur haft jákvæð áhrif en þyngst vega heilsusamlegri lífshættir. Við reykjum minna, hreyfum okkur meira og höfum aukið neyslu á grænmeti og ávöxtum en dregið úr neyslu á óhollri matvöru. Nú eftir hátíðarnar hyggjast margir taka sig á og undanfarið hefur lágkolvetnamataræði notið mikilla vinsælda. Laufey segir það geta gagnast sumum sem missa þurfi þyngd. „Það sem er alvarlegt hins vegar að mínu mati er þegar þetta er boðað sem lífsstíll og fólk fer að rugla þessu saman við heilsusamlegt mataræði. Það er í raun stóralvarlegt mál.“ Með lágkolvetnafæðu hefur neysla á feitmeti aukist aftur og Laufey nefnir til dæmis feitar mjólkurvörur og smjör. „Mér finnst umhugsunarefni hvort fólk vili virkilega fara aftur í fyrra horf þegar þessi glæsilegi árangur hefur náðst.“ Hún minnir á að rétta leiðin sé að sleppa gosi, sælgæti og kökum. „Það er heilsusamlegt lágkolvetnafæði,“ segir Laufey.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira