Kallar eftir samstöðu matvöruframleiðenda Stefán Árni Pálsson skrifar 9. janúar 2014 12:21 Helgi Vilhjálmsson. mynd / gva
Helgi Vilhjálmsson, eigandi sælgætisgerðarinnar Góu, kallar eftir samstöðu allra matvöruframleiðenda og kaupmanna í stríðinu gegn verðbólgu á nýju ári en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Helga. Með þeim hætti vill hann safna liði og svara því ákafa kalli sem heyrist nú um stundir í öllu samfélaginu; að atvinnurekendur, verkalýðsfélög og allur almenningur verði að standa saman til að viðhalda kaupmætti og stöðugleika í efnahagslífi landsmanna. „Ég kalla eftir kraftmiklum manni úr röðum atvinnurekenda til að fylkja okkur saman – og nú má enginn víkja af hólmi,“ segir Helgi. Þessi kunni iðnrekandi er vanur að fara sínar eigin leiðir í baráttunni fyrir bættum hag almennings – og er þar skemmst að minnast kröfu hans um að lífeyrissjóðirnir hjálpi til við uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir aldrað fólk. Nú horfir hann til alls almennings og brýnir fyrir kaupmönnum og öllum atvinnurekendum að láta ekki sitt eftir liggja í stríðinu gegn verðhækkunum: „Þetta vildi ég gera strax árið 2009,“ segir Helgi, „en þá vildu fáir fylgja mér eftir,“ bætir hann við – og segir að vissulega hafi oft verið þörf fyrir aðgerðir af þessu tagi, en nú sé það beinlínis nauðsyn: „Sjálfir höfum við ekki hækkað verð á okkar vörum frá því 2009 og ætlum að reyna að halda því áfram,“ segir Helgi í Góu – og heitir, sem fyrr segir, á alla kollega sína að grípa nú þegar til aðgerða: „Þeir sem vilja vera með geta bæst í hópinn. Það þarf að stöðva verðbólguna – og það er einfaldlega í höndum okkar, sem framleiðum og seljum vöruna, að gera það í samvinnu við neytendur og launþega. Það er kominn tími til að standa saman,“ segir Helgi í Góu, sem staðið hefur vaktina í sínu fyrirtæki í 45 ár.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent