Boðaðar verðhækkanir hjá Emmessís dregnar til baka 9. janúar 2014 23:16 Verð á öllum vörum Emmessís verður áfram óbreytt. mynd/arnþór
Stjórnendur Emmessís ehf. hafa ákveðið að draga til baka boðaðar verðhækkanir á vörum fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Með þessu segist fyrirtækið vilja leggja sitt af mörkum til að skapa sátt á vinnumarkaði og stuðla að stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar þrátt fyrir umtalsverða verðhækkun aðfanga og aukinn framleiðslukostnað. Verð á öllum vörum Emmessís verður því áfram óbreytt. „Það er mat stjórnenda að mikilvægt sé að nýgerðir kjarasamningar standi svo hægt sé að eyða óvissu og halda áfram að styðja við vöxt atvinnulífsins,“ segir í tilkynningunni. „Veigamikill þáttur í því er að halda verðlagi í skefjum, tryggja kaupmátt almennings og ná niður vaxtastigi í landinu. Það er bæði í þágu launafólks og atvinnurekenda, sem þurfa að búa við mun hærri fjármagnskostnað en þekkist í nágrannalöndum okkar.“ Enn fremur segir í tilkynningunni að Emmessís hafi farið ítarlega yfir rekstur sinn undanfarið ár, með það að markmiði að hagræða í stað þess að velta kostnaðarhækkunum út í verðlagið. „Þegar erfitt var að ganga lengra vegna frekari hækkana á aðföngum var tilkynnt um 4,5% hækkun á völdum vörum í febrúar næstkomandi. Ákvörðunin byggði á mikilli verðhækkun aðfanga frá erlendum birgjum, sem fyrirtækið hefur nú ákveðið að bregðast við með enn meiri hagræðingu.“
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Sjá meira