Aflaverðmæti HB Granda dróst saman um milljarð Jóhannes Stefánsson skrifar 5. janúar 2014 21:57 Fjöldi fólks starfar við sjávarútveg á Íslandi. Mynd/Stefán
Heildarafli skipa HB Granda dróst saman um 5,5% og aflaverðmætið um milljarð á milli áranna 2012 og 2013. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Árið 2012 var aflinn 199 þúsund tonn en hann var 188 þúsund tonn í fyrra. Þá var aflaverðmætið 16,7 milljarðar í fyrra miðað við 17,7 milljarða árið 2012. Aflasamdráttinn má helst rekja til dræmrar síldarveiði í lok árs, auk þess sem skipinu Venusi HF var lagt um mitt ár og Maríu AK þurfti að senda til Póllands til að láta breyta því í ísfiskitogara. Um aflahæstu togarana segir í tilkynningunni: Aflahæst uppsjávarskipanna var Ingunn AK með rúmlega 47.100 tonna ársafla og aflaverðmæti upp á tæpar 1.769 milljónir króna. Af frystitogurunum var Örfirisey RE aflahæsta skipið með 9.525 tonn og einnig með mesta aflaverðmætið, tæplega 2.271 milljón króna. Ásbjörn RE var aflahæstur ísfisktogaranna með 6.390 tonna afla en Sturlaugur H. Böðvarsson AK skilaði mestu aflaverðmæti, tæplega 1.129 milljónum króna. Tilkynninuna í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira