Nýir stjórnendur ráðnir til Meniga Stefán Árni Pálsson skrifar 10. júní 2014 15:08 Jóhann Braga Fjalldal og Björgvin Inga Ólafsson.
Til að mæta örum vexti og auknum alþjóðlegum verkefnum hefur Meniga ráðið til sín tvo nýja lykilstjórnendur; þá Björgvin Inga Ólafsson sem fjármálastjóra og Jóhann Braga Fjalldal sem framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar. Lausnir Meniga eru nú í notkun hjá um 20 fjármálastofnunum í 14 löndum. „Við hjá Meniga erum gríðarlega ánægð að fá þá Björgvin Inga og Braga til liðs við okkur. Alþjóðleg viðskiptareynsla þeirra og menntun mun nýtast Meniga vel til að takast á við verkefnin sem framundan eru,“ segir Georg Lúðvíksson, forstjóri og stofnandi Meniga. „Það er morgunljóst að hinn vaski hópur starfsmanna félagsins hefur einsett sér að vinna saman að farsællri vöruþróun og áframhaldandi landvinningum, hluthöfum og viðskiptavinum til heilla. Verður frábært að taka þátt í því,“ segir Björgvin Ingi Ólafsson, fjármálastjóri Meniga. „Það eru spennandi tímar framundar hjá Meniga. Ég hlakka til að taka þátt í að efla enn frekar þróunarstarf félagsins og styrkja stöðu þess á alþjóðlegum mörkuðum,“ segir Bragi Fjalldal, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Meniga. Björgvin Ingi Ólafsson er fæddur árið 1978. Björgvin Ingi kemur til starfa hjá Meniga frá ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey & Company, en hann starfaði áður í um áratug á íslenskum fjármálamarkaði. Björgvin Ingi er með MBA gráðu frá Kellogg School of Management og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Jóhann Bragi Fjalldal er fæddur 1974. Undanfarin 4 ár hefur Bragi gegnt stöðu framkvæmdastjóra hjá danska vindorkufyrirtækinu Vestas Wind Systems. Hann starfaði áður um árabil hjá bandaríska ráðgjafafyrirtækinu Bain & Company. Bragi er með MBA gráðu frá IMD í Sviss, MSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Sussex og BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Árósum.
Mest lesið Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira