FBI, Skype, Google og Cisco á Haustráðstefnu Advania Stefán Árni Pálsson skrifar 10. júní 2014 15:31
Advania heldur hina árlegu Haustráðstefnu í tuttugasta sinn í Hörpu þann 12. september n.k. Dagskrá ráðstefnunnar liggur nú fyrir og á henni verða tuttugu og sjö fyrirlestrar á þremur fyrirlestralínum: Öryggi og tækni, Stjórnun og Nýsköpun. Þetta kemur fram í frétttilkynningu frá Advania. Sextán erlendir sérfræðingar frá aðilum eins og FBI, Microsoft, Google, Cisco, EMC, Citrix og Samsung fara yfir strauma og stefnur í tækni og upplýsingaöryggi. Þaulreynt fagfólk úr atvinnulífinu hér heima og erlendis greinir frá því hvernig það hefur nýtt upplýsingatæknina til að leysa úr krefjandi verkefnum eða í nýsköpun. Að þessu sinni tala fjórir lykilfyrirlesarar. Þeir eru Þorsteinn B. Friðriksson forstjóri og stofnandi Plain Vanilla Games, Carlos Dominguez aðstoðarforstjóri hjá Cisco, Magnús Scheving frumkvöðull og Jesper Stormholt sem stýrir Google Enterprise á Norðurlöndunum. Nokkur leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni munu einnig sýna nýjustu lausnir og græjur á sérstöku Expó svæði. „Markmiðið með Haustráðstefnunni er að miðla því sem efst ber í upplýsingatækni á hverjum tíma og benda á leiðir til þess að ná ávinningi og samkeppnisforskoti,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania. Hann segir að á síðasta ári hafi fyrirtækið haldið fjölsóttustu Haustráðstefnu til þessa en þá hafi Advania fengið níu hundruð gesti á ráðstefnuna. „Haustráðstefnan er því fyrir löngu búin að festa sig í sessi sem stærsti viðburðurinn ársins í upplýsingatækni. Hún er einstakt tækifæri fyrir stjórnendur og sérfræðinga að fá beint í æð það sem er að gerast í hinum síbreytilega heimi upplýsingatækninnar,“ segir Gestur.
Mest lesið Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Viðskipti erlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Viðskipti erlent Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best Atvinnulíf Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Sjá meira