Viðskipti innlent

Framkvæmdastjóri byggingafyrirtækis ákærður fyrir fjárdrátt

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sérstakur saksóknari hefur ákært framkvæmdastjóra byggingafyrirtækis fyrir að hafa dregið að sér um 80 milljónir króna af fjármunum félagsins.

Er honum meðal annars gefið að sök að hafa látið fyrirtækið greiða fyrir byggingu einbýlishúss hans á Suðurlandi á tímabilinu ágúst 2004 til og með ágúst 2005. Greiðslurnar úr sjóðum voru alls 92 og hljóðuðu upp á rúmar 32 milljónir króna.

Í ákærunni á hendur manninum eru einnig tilteknar fimm færslur af reikningum fyrirtæksins vegna uppbyggingar iðnaðarhúsnæðis í eigu mannsins. Námu þær um einni milljón króna.

Rúmlega 23 milljónir króna rötuðu á persónulega bankareikninga mannsins á tímabilinu janúar 2004 til og með nóvember 2005. Millifærslurnar eru án skýringa á bankareikningi og í bókhaldi félagsins og því dregin sú ályktun að um fjárdrátt sé að ræða.

Um svipað leyti greiddi maðurinn sér laun upp á rúmlega 28 milljónir króna en sú upphæð hélst ekki í hendur við skattframtal mannsins og er upphæð fjárdráttar ákærða að teknu tilliti þess áætluð um 22 milljónir króna. Færslurnar voru alls 45.

Farið er fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×