Auglýsingar Mbl.is brutu gegn lögum Samúel Karl Ólason skrifar 29. júlí 2014 18:55 Brotin áttu sér stað í febrúar í fyrra.
Neytendastofa segir útvarpsauglýsingar Mbl.is, þar sem fram komu fullyrðingar um vinsældir vefsins, hafa brotið gegn lögum. „100 þúsund fleiri Íslendingar lesa mbl.is en visir.is. Íslendingar lesa mbl.is.“ Svo hljóðaði önnur auglýsingin. Hin útvarpsauglýsingin hljóðaði svona: „Lestur á mbl.is er tvöfalt meiri en á visir.is. Íslendingar lesa mbl.is.“ Báðar auglýsingarnar voru spilaðar á Rásum eitt og tvö hjá RÚV. Þó segir Neytendastofa í tilkynningu á heimasíðu stofunnar að auglýsingar með slagorðunum „15 ár á toppnum“ og „Vinsælastur í 15 ár“ hafi ekki brotið lög. Enda hafi Árvaki tekist að sanna þær fullyrðingar. 365 miðlar ehf. kvörtuðu til Neytendastofu með bréfi sem dagsett var 28. febrúar 2013. Þar var kvartað yfir ólögmætri háttsemi Árvakurs hf. sem brjóti gegn lögum nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Árvakur mótmælti þessu, en hætti þó birtingu auglýsinganna að eigin frumkvæði. „Stofnunin fær ekki séð að fullyrðingarnar séu til þess fallnar að villa um fyrir neytendum eða hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra en hinar ósönnuðu fullyrðingar eru þrátt fyrir það ósanngjarnar gagnvart keppinauti og til þess fallnar að hafa áhrif á eftirspurn, vegna auglýsinga á miðlunum, auk þess að fela í sér villandi samanburð,“ segir í niðurstöðu Neytendastofu. Ákvörðun Neytendastofu í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Sjá meira