Ársverðbólga komin í 3,1 prósent Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 31. janúar 2014 07:00 Verð á fatnaði og skóm lækkaði í janúar og hefur það nokkur áhrif á verðbólguvísitöluna. Vísir/Vilhelm
Ársverðbólga lækkaði um 1,1 prósentustig milli mánaða í janúar, úr 4,2 prósentum í 3,1 prósent. Hagstofan birti janúarmælingu vísitölu neysluverðs í gær og lækkaði vísitalan um 0,7 prósent milli mánaða. Lækkunin í janúar var meiri en opinberar spár gerðu ráð fyrir, en þær lágu á bilinu 0,3 til 0,5 prósent. Hagfræðideild Landsbankans segir spáskekkju opinberra spáa hafa farið vaxandi frá því í haust. Í janúar hafa útsölur jafnan mest áhrif, fatnaður og skór lækkuðu um 10,8 prósent og húsgögn og heimilisbúnaður um 2,8 prósent. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu einnig um 14,6 prósent og eldsneyti um 2,5 prósent. Helstu hækkunarvaldar í janúar voru húsnæðisliðurinn og hækkun gjaldskráa ýmissa fyrirtækja og stofnana. Gengisvísitala krónunnar hefur lækkað um 5,0 prósent frá því í nóvember, meðal annars vegna inngripastefnu Seðlabankans. Einnig hefur bensínverð verið á niðurleið. Þessi þróun er einnig greinileg þegar litið er á samsetningu verðbólgunnar. Innlend þjónusta og húsnæðisverð skýra 80 prósent af verðbólgunni í janúar. Þessir liðir vega 52 prósent af vísitölunni og því er verðbólgan að mestu leyti innlend, að sögn hagfræðideildar Landsbankans.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent