Viðskipti innlent

Fasteignagjöld hækka um 800 milljónir

Bjarki Ármannsson skrifar
Á höfuðborgarsvæðinu hækkar matsverð íbúða í fjölbýli meira en mat íbúða í sérbýli.
Á höfuðborgarsvæðinu hækkar matsverð íbúða í fjölbýli meira en mat íbúða í sérbýli. Vísir/Vilhelm
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,7 prósent og verður 5.396 milljarðar króna samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2015. Þetta er talsvert meiri hækkun en í fyrra en alls hækkar matið á 91,7 prósent eigna á landinu.

Eins og gefur að skilja þýðir hærra fasteignamat hærri fasteignagjöld á næsta ári. Gróflega má gera ráð fyrir því að fasteignagjöld Íslendinga muni hækka um 800 milljónir á næsta ári. Það gerir um 6.500 krónur aukalega á hvert heimili.

Svo dæmi sé tekið myndu gjöld á fasteign í Vesturbæ Reykjavíkur sem er 40 milljóna króna virði hækka um tíu þúsund krónur samkvæmt nýju fasteignamati.

Fjölbýli hækkar frekar á höfuðborgarsvæðinu

Fasteignamat á landinu hækkar mest í Borgarfjarðarhreppi, eða um 14,3 prósent. Það lækkar í tveimur sveitarfélögum, um 2,1 prósent í Vogum á Vatnsleysuströnd og um 0,2 prósent í Ísafjarðarbæ. Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 9,1 prósent.

Matið lækkar hvergi á höfuðborgarsvæðinu. Mest hækkar það í Akrahverfi í Garðabæ, um 14,6 prósent, en minnst í Leirvogstungu í Mosfellsbæ, um 1,7 prósent. Matið á miðlægum svæðum hækkar að jafnaði meira en þeim sem eru í jaðri höfuðborgarinnar, þannig hækkar matið talsvert meira í til dæmis Vesturbænum og Hlíðahverfi Reykjavíkur en í Grafarvogi.

Athygli vekur að á höfuðborgarsvæðinu hækkar matsverð íbúða í fjölbýli meira en mat íbúða í sérbýli. Utan höfuðborgarsvæðisins er þessu öfugt farið.

Tekjur sveitarfélaganna aukast um milljarð

Fasteignamat á atvinnuhúsnæði hækkar um 12,4 prósent á landinu öllu. Breytingar á mati atvinnuhúsnæðis eru mjög mismunandi og stafar það fyrst og fremst af breyttri matsaðferð Þjóðskrár.

Ný aðferð miðar að því að samband sé milli fasteignaverðs atvinnuhúsnæðis og þeirra tekna sem af húsnæðinu má hafa. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að tekjur sveitarfélaganna muni aukast um um það bil milljarð króna á næsta ári vegna nýju aðferðarinnar.

Halldór segir einnig að álagning á eigendur fasteigna, sem hækka vegna nýju matsaðferðarinnar, verði milduð með nýju frumvarpi innanríkisráðherra í haust.

„Þessu verður dreift á 2015 og 2016 og kemur ekki að fullu til útgjalda fyrir þau fyrirtæki sem eiga svona húsnæði fyrr en 2017,“ segir Halldór.

Nýja fasteignamatið tekur ekki gildi fyrr en 31. desember næstkomandi og frestur til að skila inn athugasemdum vegna þess er til 1. nóvember.


Tengdar fréttir

Fasteignamat hækkar um 7,7%

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,7% frá yfirstandandi ári og verður 5.396 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2015 sem Þjóðskrá Íslands birti í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×