Davíð Stefán Guðmundsson nýr framkvæmdastjóri Talentu Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 13. maí 2014 13:01 Davíð hefur unnið hjá Símanum með hléum frá árinu 2001. Vísir/Síminn
Davíð Stefán Guðmundsson er nýr framkvæmdastjóri Talentu, sem sérhæfir sig í alhliða ráðgjöf við þróun og rekstur á SAP hugbúnaði. Talenta var stofnað 2011 af fyrrum SAP starfsmönnum Símans og er í eigu Símans og starfsmanna. Viðskiptavinir Talenta eru mörg af stærstu fyrirtækjum og fjármálastofnunum landsins, en SAP viðskiptahugbúnaður er þungamiðjan í rekstri margra stærri fyrirtækja, segir í tilkynningu frá Símanum. „Það er spennandi að taka við fyrirtækinu á þessum tímapunkti. Talenta stendur vel og framundan eru tímabil vaxtar og frekari sóknartækifæra,“ segir Davíð sem hefur starfað hjá Símanum í ellefu ár: „Hjá Talenta starfar samheldinn hópur sérfræðinga sem býr yfir mikilli þekkingu, það er mér mikil ánægja að fá að taka þátt í störfum þeirra.“ Davíð Stefán hóf störf hjá Símanum eftir tveggja ára hlé í febrúar 2008 sem sérfræðingur í viðskiptaþróun og erlendum mörkuðum og sinnti í ár. Þegar fókus Símans færðist heim tók Davíð Stefán við sem forstöðumaður í fyrirtækjaþjónustu Símans og hélt utan um þjónustu við fyrirtæki. Á árunum 2010 til 2013 var hann forstöðumaður heildarlausna fyrir fyrirtæki, en það fól í sér tæknilega þjónustu, vöruþróun og vörustýringu á fyrirtækjamarkaði. Frá því í september hefur hann verið sérfræðingur í viðskiptaþróun. Fyrsta starf Davíðs hjá Símanum var eftir útskrift úr háskóla árið 2001 þegar hann vann sem sölumaður fyrirtækjalausna. Hann tók svo við starfi viðskiptastjóra smærri fyrirtækja og loks stærri. Árin tvö sem hann varði kröftum sínum utan Símans vann hann hjá Open Hand hf. sem sölu- og markaðsstjóri fyrir innlenda og erlenda starfssemi í Bretlandi, Þýskalandi og víðar. Davíð Stefán er 38 ára iðnrekstrarfræðingur með Bsc. gráðu í alþjóðamarkaðsfræði.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira