Landsbankinn segir frétt Reuters ranga Haraldur Guðmundsson skrifar 27. janúar 2014 12:11 Landsbankinn segir útreikninga Reuters ekki standast skoðun. Vísir/GVA
Hagfræðideild Landsbankans segir að frétt Reuters (Thomson Reuters, TR) um meinta erfiðleika Íslands á alþjóðlegum lánamörkuðum sé röng. Þar heldur blaðamaður því fram að vextir á fimm ára skuldabréfi ríkissjóðs hafi, frá því ný ríkisstjórn tók við, hækkað úr 4,1 prósenti í 6,4 prósent. „Við nánari athugun kemur í ljós að blaðamaður er að fjalla um þróun ávöxtunarkröfu á ríkisskuldabréfum í krónum en ekki erlendri mynt eins og látið er liggja að í fréttinni. Engu að síður standast útreikningar TR ekki nánari skoðun,“ segir í Vikubyrjun Landsbankans. Þar má sjá mynd sem sýnir þróun á ávöxtunarkröfu íslensks ríkisskuldabréfs í krónum á gjalddaga 2016, sambærilegs bréfs á gjalddaga 2019 og fimm ára ávöxtunarkröfu ríkisins eins og hún birtist í upplýsingakerfi TR. „Eins og sést þá virðist sem viðmiðunarbréf upplýsingakerfis Thomson Reuters breytist í mars, þannig að höfundur fréttarinnar er að bera saman ávöxtunarkröfu mismunandi bréfa með mismunandi gjalddaga, sem er engan vegin rétt aðferðafræði. Einnig virðist sem TR noti dagsetningu í byrjun mars sem fyrri viðmiðunarpunkt, tveimur mánuðum áður en núverandi ríkisstjórn tók við, en miklar sviptingar áttu sér stað rétt í kjölfarið af ástæðum sem hafa lítið með efni fréttarinnar að gera. Að lokum verður það að teljast mjög sérstakt að ræða um ávöxtunarkröfu skuldabréfa í íslenskum krónum sem er læst bak við gjaldeyrishöft í frétt um aðgengi Íslands að erlendum lánamörkuðum, í stað þess að skoða kröfu á erlendu skuldabréfi ríkissjóðs.“
Mest lesið Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Atvinnulíf Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Neytendur eigi meira inni Neytendur Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Viðskipti innlent Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Sjá meira