Brotajárni breytt í stál til útflutnings Kristján Már Unnarsson skrifar 10. október 2014 20:30
Eina stálbræðslan hérlendis, sem hóf starfsemi í fyrra, er nú í fyrsta sinn að skipa út stáli til útflutnings. Hráefnið er margskyns brotajárn sem til fellur á Íslandi. Fyrirtækið heitir GMR endurvinnslan, sem stendur fyrir Geothermal Metal Recycling, en er þó í einföldu máli stálbræðsla. Allskyns brotajárni er sturtað ofan í risastóran bræðsluofn, málmurinn bræddur upp og hreinsaður og síðan mótaður að óskum kaupenda. Þarna starfa fjörutíu manns en í dag urðu tímamót. Það var komið skip að sækja stál. Þetta er fyrsti farmurinn sem GMR selur úr landi en ráðamenn fyrirtæksins segja að slíkt hafi ekki verið gert hérlendis frá því stálbræðsla starfaði um skamma hríð í Hafnarfirði fyrir aldarfjórðungi. „Við erum náttúrlega mjög ánægðir með að vera að búa til verðmæti úr því brotajárni sem fellur til á Íslandi,“ sagði Sigurður Ágústsson, framkvæmdastjóri GMR endurvinnslunnar, í fréttum Stöðvar 2. Með þessu væri jafnframt verið að skapa störf og gjaldeyristekjur. Stálið lestað á Grundartanga í dag.Stöð 2/Sigurjón Ólason.Í brotajárnshaugnum sáum við meðal annars leifar af skurðgröfu en mest kemur þó frá álverunum og þau eru líka stærstu kaupendur að stálinu, sem kemur úr bræðslunni, og nota það í straumteina í kerskálum. Stálið á hafnarbakkanum er hins vegar á leið til kaupenda í Egyptalandi. „Við erum fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir álverin á Íslandi. Þetta er svona aukaafurð.“ Vera má að sumt af því sem hér er verið að skipa út hafi áður pirrað menn sem gamalt véladrasl bak við húskofa eða út í móa. Þetta er algert þjóðþrifafyrirtæki, sagði Sigurður aðspurður á Stöð 2, brotajárni væri breytt í útflutningsverðmæti.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Sjá meira