Viðskipti innlent

Landsbankinn telur hagkvæmt að flytja höfuðstöðvar sínar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/gva
Landsbankinn telur hagkvæmt að flytja starfsemi höfuðstöðva sinna í húsnæði sem sniðið er að þörfum hans og koma starfseminni undir eitt þak að stærstum hluta. Æskilegt sé að ná fram aukinni skilvirkni og minnka verulega það pláss sem bankinn nýtir. Með því verði hægt að hagræða til lengri tíma litið og efla um leið rekstur Landsbankans.

„Sama gildir í raun um höfuðstöðvarnar eins og útibúin. Bankinn þarf nú minna og hentugra húsnæði. Endanlegar ákvarðanir hafa ekki verið teknar í þessu máli en bankaráðið er einróma þeirrar skoðunar að núverandi húsnæðisvanda þurfi að leysa,“ sagði Tryggvi Pálsson, formaður bankaráðs Landsbankans á aðalfundi bankans í ávarpi sínu í Hörpu í dag

Tryggva varð tíðrætt um hagræðingu í rekstri og hagkvæmni og benti á að bankinn hefði aukið hagkvæmni í rekstri sínum verulega á undanförnum árum.

Þá segir hann að fyrir dyrum standi veigamiklar breytingar á þjónustu við lítil og meðalstór fyrirtæki með opnun fyrirtækjamiðstöðvar í Borgartúni 33 á vormánuðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×