Viðskipti innlent

Sigurður Pálsson nýr forstjóri BYKO

Bjarki Ármannsson skrifar
Sigurður tekur við starfinu um næstu mánaðamót.
Sigurður tekur við starfinu um næstu mánaðamót.
Sigurður Pálsson, framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs BYKO, tekur við starfi forstjóra félagsins um næstu mánaðamót. Núverandi forstjóri, Guðmundur H. Jónsson, verður stjórnarformaður.

Sigurður er viðskiptafræðingur frá Tækniháskóla Íslands og hefur starfað hjá BYKO frá árinu 2000.

„Ég hlakka til að takast á við verkefnin framundan með þeim sterka hópi starfsmanna sem BYKO hefur innanborðs,“ segir Sigurður í tilkynningu frá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×