Minni hagnaður hjá TM Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. febrúar 2014 00:01
Hagnaður tryggingafélagsins TM nam 2.078 milljónum króna á síðasta ári sem er 560 milljónum krónum minni hagnaður en árið 2012 þegar hagnaðurinn nam 2.638 milljónum króna. Þá nam framlegð af vátryggingastarfsemi 547 milljónum króna. Hún var 890 milljónir árið 2012. Fjárfestingatekjur voru 2.094 milljónir króna sem er aðeins minna en árið 2012. Eigið fé TM var 12.308 milljónir króna í lok ársins 2013 og eiginfjárhlutfallið 40,3% borið saman við 37,3% undir lok árs 2012.Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir í uppgjörstilkynningu að hagnaður fyrir skatta sé um 2% lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Tvö stór skipatjón urðu á þriðja fjórðungi ársins sem höfðu þau áhrif að eigin tjónakostnaður félagsins var um 200 milljónum krónum hærri en áætlað var. Iðgjöld vegna slysatrygginga sjómanna voru rúmlega 150 milljónum króna lægri en ráð var fyrir gert á árinu en þau fylgja þróun aflaverðmætis sem dróst saman um rúm 5% milli ára. Áætlanir TM höfðu gert ráð fyrir því að áhrifa af samdrætti í aflaverðmæti gætti í iðgjöldum tímabilsins, en ekki í jafn miklum mæli og raun varð. Afkoma annarra greinaflokka en skipa- og slysatrygginga er í takti við áætlun. Kostnaðarhlutfall hækkar vegna einskiptiskostnaðar við skráningu félagsins en sá kostnaður nam um 95 millj. kr. Að auki var umboðs- og launakostnaður hærri en ráð var fyrir gert, bæði vegna aukinnar sölu en einnig vegna kostnaðar við skipulagsbreytingar,“ segir Sigurður í tilkynningunni.
Mest lesið Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira