Viðskipti innlent

Stekkur eignast meirihlutann

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Bíl fra Securitas.
Bíl fra Securitas.
Stekkur fjárfestingarfélag hefur eignast meirihluta í Securitas og framtakssjóðurinn Edda slhf. hefur keypt 40 prósenta hlut, að því er fram kemur í tilkynningu.

Stekkur átti fyrir þriðjungshlut, en Fagfjárfestasjóðurinn Norðurljós og AUÐUR I fagfjárfestasjóður slf. selja sína hluti.

Guðmundur Arason
„Lykilstjórnendur Securitas verða áfram í hluthafahópi félagsins,“ segir í tilkynningu og eru kaupin háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Haft er eftir Guðmundi Arasyni, forstjóri Securitas, að nýir hluthafar þekki félagið vel og deili framtíðarsýn með stjórnendum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×