Viðskipti innlent

Umsvif lífeyrissjóða á hlutabréfamarkaði minnka

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Daníel
Lífeyrissjóðirnir virðast umsvifaminni á hlutabréfamarkaði í byrjun þessa árs miðað við 2013. Samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka er hlutdeild þeirra í skráðum íslenskum félögum á Aðallista Kauphallarinnar nú 35,2 prósent. Í janúar í fyrra var hlutdeild þeirra 36,7 prósent.

Sala Framtakssjóðs Íslands á hlut sínum í Icelandair er talin ein helsta ástæða þessarar lækkunar.

Beint og óbeint eiga lífeyrissjóðirnir meira en helminginn í tveimur félögum, N1 og Icelandair. Þá er eignarhald þeirra einnig verulegt í Vodafone, Högum, Reginn og TM. „Frá því að við gáfum síðast út mat á hlutfallslegri eign lífeyrissjóðanna hefur eign þeirra aukist mest í Reginn eða um 4,7 prósent en minnkað mest í Vodafone eða um 4,6 prósent,“ segir í Morgunkorninu.

Einnig segir að ljóst sé að lífeyrissjóðirnir hafi töluvert að segja um rekstur þessara félaga í krafti eignarhluta sinna. Þeir hafi þó oft á tíðum fremur kosið að halda sér til hlés varðandi beina aðkomu að málefnum félagana og hafi jafnvel hlotið ámæli fyrir.

„Þá hefur það sérstaklega þótt óheppilegt að hlutfallslega minni eigendur geti haft mikið um rekstur félaga að segja vegna hlutleysis lífeyrissjóðanna. Haldist óvirkni eignarhluta lífeyrissjóðanna áfram þá má telja verulegt eignarhald þeirra til lengri tíma óheppilegt.“

Spurningin hvert peningar lífeyrissjóðanna seú að fara, fyrst þeir kaupa minna á hlutabréfamarkaði kemur upp hjá Greiningunni.

„Á síðustu mánuðum og um þessar mundir hafa lífeyrissjóðirnir ásamt öðrum hins vegar ráðist í ýmsar stórar fjárfestingar utan markaða. Meðal þessara viðskipta má nefna kaup á HS Veitum, kaup á Höfðatorgi og kaup á Norvik,“ segir í Morgunkorninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×