Þrír fatahönnuðir meðal styrkþega Auroru Bjarki Ármannsson skrifar 25. nóvember 2014 17:45 Styrkþegarnir. Á myndina vantar fulltrúa kronkron og Or Type. Mynd/ Adriana Pacheco
Sjö verkefni hlutu í dag styrk úr Hönnunarsjóði Auroru í húsnæði Hönnunarsjóðsins að Vonarstræti 4b. Hæstu fjárhæðina hlaut Hildur Yeoman fatahönnuður, tvær milljónir króna.Hún fær styrk til „víðtækrar vöruþróunar og uppbyggingar eigin vörumerkis“ að því er segir í tilkynningu en Hildur hefur unnið mikið með flóru Íslands í vörumerki sínu ásamt ýmsum samstarfsaðilum. Þá hlutu eina og hálfa milljón króna í styrk Or Type, fyrsta og eina sérhæfða leturútgáfa Íslands, Róró, sprotafyrirtæki sem stendur að baki brúðunnar Lúllu sem þróuð er með tilliti til þarfa fyrirbura, og fatamerkið Jör by Guðmundur Jörundsson, sem fær styrk til hönnunar haustlínu og til kynningar erlendis. Fatamerkið Kron by kronkron hlaut eina milljón króna í styrk, nýstofnað tímarit um hönnun og arkitektúr á vegum hönnunarfélaganna sem eiga Hönnunarmiðstöð Íslands hlaut 800.000 krónur og Katla Maríudóttir, nýútskrifaður arkítekt, fékk 500.000 krónur til að aðlaga mastersverkefni sitt. Hönnunarsjóður Auroru var stofnaður árið 2009 og þetta var tólfta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum. Hann hefur það að markmiði að „efla framgang og gildi góðrar hönnunar.“
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira