Viðskipti innlent

Diet Coke hættir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Framleiðsla á Diet Coke í tveggja lítra umbúðum mun hætta á næstu dögum og í kjölfarið af því mun framleiðsla á Diet Coke í hálfs lítra umbúðum einnig hætta.

„Neyslumynstrið er að breytast mikið og eftirspurn eftir þessari vöru fer minnkandi,“ segir Jón Viðar Stefánsson, markaðsstjóri gosdrykkja hjá Vífilfelli.

Jón segir jafnframt að Ísland sé eitt af fáum löndum sem er með þrjá sykurlausa Coke drykko á markaði og að Vífilfell og The Coca-Cola Company munu hér eftir leggja aukna áherslu á Coke Zero og Coke Light.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×