Viðskipti innlent

Erlendar tekjur TM Software jukust um 70%

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri TM Software.
Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri TM Software. mynd/aðsend
Erlendar tekjur hugbúnaðarfyrirtækisins TM Software jukust um 70% á síðasta ári og námu þær 40% af heildartekjum en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Í heild jókst velta fyrirtækisins um 25% á árinu 2013.

„Góður vöxtur var í sérhæfðum hugbúnaðarverkefnum á Íslandi og þá helst fyrir fyrirtæki og stofnanir í heilbrigðis- og ferðamannageiranum. Hugbúnaðarlausnir fyrirtækisins, Tempo, sem eru seldar á alþjóðlegum markaði halda áfram að seljast vel og eru yfir 5 þúsund fyrirtæki sem notfæra sér hugbúnaðinn í 111 löndum," segir Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri TM Software.

Meðal viðskiptavina eru fyrirtæki eins og MTV, AT&T, ebay, Oracle, Samsung og amazon.com.

„Afkoma TM Software var samkvæmt áætlun og horfur fyrir árið 2014 eru góðar. Gert er ráð fyrir því að erlendar tekjur haldi áfram að aukast og verði stöðugt hærra hlutfall af heildarveltu TM Software," segir Ágúst.

TM Software sérhæfir sig í framleiðslu á eigin hugbúnaðarvörum og ráðagjöf og þjónustu á sérhæfðum hugbúnaðarlausnum. Um 80 manns starfa hjá TM Software, sem er dótturfélagið Nýherja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×