Fjármögnun fjárfestingafélagsins Akurs lokið Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 10. febrúar 2014 10:59 Meðal hluthafa í Akri eru 11 lífeyrissjóðir, VÍS og Íslandsbanki.
VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka og rekstrarfélag bankans, Íslandssjóðir, hafa lokið fjármögnun Akurs, nýs fjárfestingafélags sem fjárfestir í óskráðum hlutabréfum. Akur var stofnaður í september síðastliðnum og hefur verið unnið að fjármögnun undanfarið. Hluthafahópurinn er breiður en meðal hluthafa í Akri eru 11 lífeyrissjóðir, VÍS og Íslandsbanki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. „Ég lít á það sem mikla traustyfirlýsingu frá lífeyrissjóðum og öðrum fagfjárfestum að okkur hafi tekist að koma Akri á fót og sérlega gaman að við nýtum reynslu innanhúss til þess að byggja okkur upp enn frekar á þessu sviði. Við höfum vandað til verka og fengum meðal annars okkur til aðstoðar tvo af okkar erlendu stjórnarmönnum með mikla reynslu af þessu sviði en markið er sett hátt varðandi fagmennsku eins og sést af öflugu fjárfestingaráði. Akur verður án efa mikilvægt hreyfiafl í áframhaldandi uppbyggingu íslensks atvinnulífs,“ segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka í yfirlýsingunni. Akri er stýrt af Íslandssjóðum en framkvæmdastjóri félagsins er Jóhannes Hauksson og með honum starfar Davíð Hreiðar Stefánsson. Fjárfestingaráð Akurs er skipað reyndum aðilum sem eru óháðir bankanum en þau eru Hörður Arnarson formaður, Hjörleifur Pálsson, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Jón Björnsson. Fjárfestingartími Akurs er þrjú til fjögur ár en áætlaður líftími sjóðsins er átta til tíu ár og er fjárfestingagesta félagsins 7,3 milljarðar.
Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Fleiri fréttir Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Sjá meira