Sæunn forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 10. febrúar 2014 12:18 Sæunn var alþingismaður á árunum 2006-2007.
Sæunn Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Frá þessu greinir í frétt á heimasíðu háskólans. Sæunn lauk BS-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2003 og hefur frá árinu 2007 verið sérfræðingur á skrifstofu rektors Háskóla Íslands. Þá var hún verkefnisstjóri aldarafmælis Háskóla Íslands árið 2011. Áður en Sæunn gekk til liðs við Háskóla Íslands var hún aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og síðar félagsmálaráðherra. Sæunn var alþingismaður á árunum 2006-2007. Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands tók til starfa 1998. Stofnunin er vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Markmið stofnunarinnar er enn fremur að styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf í landinu og einnig rannsóknir á landsbyggðinni, bæði sjálfstæðar rannsóknir háskólans og rannsóknir í samstarfi við aðra. Markmiðið er jafnframt að nýta staðbundnar aðstæður í umhverfi og atvinnugreinum til rannsókna og auka þekkingu á þeim, stuðla að nánum tengslum fræðasviða og deilda háskólans við rannsóknasetur á landsbyggðinni og veita nemendum aðstöðu til vettvangsnáms. Undir stofnunina heyra sjö rannsóknasetur. Þau eru á Hornafirði, Suðurlandi, Snæfellsnesi, Suðurnesjum, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og á Húsavík. Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands heyrir undir háskólaráð Háskóla Íslands en um síðustu áramót var fyrirkomulagi á daglegri starfsemi, umsýslu og rekstri stofnunarinnar breytt með því að færa hana undir skrifstofu rektors í þeim tilgangi að skerpa á markmiðum og styrkja og efla samstarf við aðila á landsbyggðinni. Er það í samræmi við áherslur í stefnu Háskóla Íslands 2011-2016 og samning háskólans og mennta- og menningarmálaráðuneytis um kennslu og rannsóknir 2012-2016, um aukið samstarf við rannsóknastofnanir, háskóla, fyrirtæki og menningarstofnanir. Eftir breytingarnar eru skýrari skil á milli daglegs rekstrar og umsýslu stofnunarinnar annars vegar og faglegra málefna í samvinnu við fræðasvið og deildir hins vegar, sem fram fara á vettvangi rannsóknasetranna. Sæunn mun áfram gegna starfi sérfræðings á skrifstofu rektors í hálfu starfi á móti hálfu starfi forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent