Yfirlýsing frá Nóa Siríus vegna verðbreytinga Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 9. janúar 2014 12:20 Mynd/Úr safni.
Nói Siríus hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna verðhækkana sinna. Fyrirtækið segir að vegna mikilla hækkana á framleiðslukostnaði og einkum hráefnisverði undanfarin misseri, um tugi prósenta í sumum tilvikum, sé óhjákvæmilegt að Nói Síríus hækki listaverð. Mun verð á framleiðsluvörum fyrirtækisins hækka á bilinu 2,5 – 9% frá og með 22. janúar næstkomandi. Nói segir það ekki auðvelda ákvörðun að hækka verð í því samkeppnisumhverfi sem Nói Síríus starfar og það gerir enginn nema að ríkar ástæður búi að baki. Bakgrunnur þessara hækkana sé fyrst og fremst nær stöðugar hækkanir á helstu hráefnum til súkkulaðigerðar á heimsvísu og leitt hefur til hækkunar á súkkulaði víða um heim. Sem dæmi megi nefna að verð á einu helsta hráefni til framleiðslunnar hefur hækkað um helming á einu ári. Í tilkynningunni segir: „Nói Síríus hefur gert sitt besta til að halda aftur af hækkunum þrátt fyrir kostnaðarhækkanir og meðal annars farið í gegnum viðamiklar aðgerðir til að straumlínulaga reksturinn undanfarin ár. En það eru takmörk fyrir því hverju hægt er að ná fram með slíkum aðgerðum og ekki eru aðrar leiðir færar nú en að hækka verð ef ekki á að fara illa. Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns og án hækkana væri vegið að rekstrargrundvelli þess og um leið starfsgrundvelli starfsfólksins. Ef ekki væru þessar sérstöku aðstæður hefði Nói Síríus auðvitað gert sitt ítrasta til að láta umsamdar launahækkanir í nýgerðum kjarasamningum ekki hafa áhrif á verðlagningu fyrirtækisins.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent