Aukin bílasala drifin áfram af sölu til einstaklinga og fyrirtækja Finnur Thorlacius skrifar 4. apríl 2014 11:25 Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins, afhenti Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, fyrsta eintakið af Árbók bílgreina 2014. BGS ,,
Það eru mörg jákvæð teikn á lofti þótt bílgreinin, eins og mörg atvinnustarfsemi í landinu, hafi siglt í gegnum ólgusjó. Á fyrstu þremur mánuðum ársins varð um það bil 20% söluaukning á nýjum bílum sem eru gleðitíðindi. Það merkilegasta er að þessi aukna sala er að miklu leyti drifin áfram af sölu til einstaklinga og fyrirtækja, því hlutfall bílaleigu er ekki nema fjórðungur af þessari sölu,“ sagði Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins, á ársfundi sambandsins sem haldinn var á Hótel Natura í gær. Alls voru seldir 1.574 fólksbílar á fyrstu 3 mánuðum ársins. Þá hafa á þriðja hundrað sendi- og vörubílar verið skráðir á fyrstu þremur mánuðum ársins og er það hátt í tvöföldun á sölu miðað við sama tíma í fyrra. Jón Trausti sagði að bílafloti landsmanna hafi elst hratt síðustu ár. Svo hratt að í dag er hann einn elsti bílafloti Evrópu og er meðalaldur skráðra fólksbíla á Íslandi hátt í 13 ár. ,,Bílafloti Íslendinga er ein af helstu fjárfestingum þjóðarinnar og það er mikilvægt að almenningur og fyrirtæki njóti þeirra framfara sem átt hefur sér stað undanfarin ár í bílum, sem skilar sér meðal annars í lægri eldsneytis- og rekstrarkostnaði, umtalsvert meira umferðaröryggi og miklu mun umhverfismildari valkostum, svo nokkuð sé nefnt.“ ,,Við viljum að þjóðin hafi tækifæri til að viðhalda þessari fjárfestingu með eðlilegri endurnýjun og þurfa stjórnvöld að sjá til þess að stöðugleiki ríki í kringum umhverfi bílgreinarinnar. Skattheimta þarf að vera eðlileg og í takt við það sem gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þá þarf að tryggja að vörugjöld af öryggisbúnaði bifreiða séu í lágmarki svo almenningur veigri sér ekki við nauðsynlegt viðhald á búnaði sem hefur úrslitavald þegar mest á reynir. Ein af þeim leiðum sem við höfum bent stjórnvöldum á er að styðja við förgun eldri bifreiða með því að hækka skilagjald sem er endurgreitt er þegar bílum er fargað í endurvinnslustöðvum, slíkt átak mun hafa jákvæð áhrif,“ sagði Jón Trausti ennfremur. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var gestur fundarins og sagði að stjórnvöld þyrftu að taka margt til skoðunar í því sem formaður Bílgreinsambandsins nefndi. Bjarni sagði í ræðu sinni að umhverfið hefði verið mjög krefjandi fyrir bílgreinina. Nauðsynlegt væri að tryggja jafnvægi á endursölumarkaði og þörf væri á að huga að auknu menntunarstigi og endurmenntun innan bílgreinarinnar. Fram kom á ársfundinum að miðað við framleiðsluuppgjör Hagstofu Íslands var meðaltal bílgreina frá 1997-2012 rúm 1,3% landsframleiðslu. Við þann mikla samdrátt sem varð í bílgreinum 2008, í kjölfar kreppunnar, drógust bílgreinar saman um tvo þriðju hluta frá fyrra ári, úr 1,5% í 0,5%. Frá árinu 2008 hefur umfang bílgreina vaxið þó nokkuð á nýjan leik en hlutfall þeirra var 1,2% af landsframleiðslu árið 2012. Stjórn Bílgreinsambandsins skipa Jón Trausti Ólafsson, formaður frá Öskju, Skúli Skúlasson frá BL, Lárus Blöndal Sigurðsson frá Bílanaust, Haraldur Þór Stefánsson frá Toyota, Einar Sigurðsson frá Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, Sverrir Gunnarsson frá Nýsprautun og Steingrímur Birgisson frá Höldur. Varamenn voru kosnir Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna og Atli Vilhjálmsson frá Betri bílum.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Sjá meira