Stígamótakonur leita karls með skegg Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 6. mars 2014 13:21 Guðrún Jónsdóttir. Kynferðisofbeldi er fyrst og fremst karlavandamál. gva
Átján prósent skjólstæðinga Stígamóta á síðasta ári voru karlmenn, sem rekja má fyrst og fremst til Karls Vignis málsins svokallaða að sögn talskonu Stígamóta. Samtökin ætla nú í fyrsta skipti að ráða karlmann í vinnu til sín en í dag vinna níu konur á Stígamótum. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta var gestur á opnu málþingi Zontklúbbs Selfoss í Tryggvaskála í gærkvöldi þar sem hún sagði frá starfsemi samtakanna og fjallaði um ósýnilegt ofbeldi. Hún kom líka inn á kynferðislegt ofbeldi og var þar með splunku nýja frétt sem mun birtast í ársskýrslu samtakanna fyrir 2013, sem kemur út í lok mánaðarins. „Við höfum aldrei fengið jafn marga karla til Stígamóta eins og síðast liðið ár. Átján prósent af þeim sem komu til okkar í fyrra voru karlar. Og það tengist umræðunni í kjölfar Karls Vignis-málsins,“ segir Guðrún. Stígamót leita nú af logandi ljósi af góðum karlmanni, sem vill vinna með þeim níu konum sem starfa hjá Stígamótum. „Já, við viljum fá góðan karl í lið með okkur. Helst með skegg og allt svo þetta sé augljóslega maður. Og, þá kannski til að undirstrika vinnu okkar með körlum. Allra hluta vegna viljum við hafa val um að fólk geti farið til karls þegar það kemur til okkar. Og ekki síst vil ég hafa karl við hliðina á mér, eða geta sent karl með fræðslu út í skóla og út í samfélagið vegna þess að kynferðisofbeldi er fyrst og fremst karlavandamál.“ Guðrún segist vera ákaflega glöð með það hvað karlar leita mikið til Stígamóta eftir aðstoð. „Við rekum fyrir þá sjálfshjálparhópa til dæmis og þeir koma í viðtöl. Það er bara hið besta mál.“
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira