Viðskipti innlent

Sleppa undan fangelsisvist vegna tafa hjá Sérstökum saksóknara

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Óútskýrðar tafir hjá Sérstökum saksóknara komu dæmdum skattsvikurum til góða í Héraðsdómi Reykjaness.
Óútskýrðar tafir hjá Sérstökum saksóknara komu dæmdum skattsvikurum til góða í Héraðsdómi Reykjaness. Fréttablaðið/Stefán
Þrír menn sem dæmdir voru til fangelsisvistar vegna skattsvika sleppa við að sitja inni vegna tafa í meðferð málsins hjá Sérstökum saksóknara.

Málið snerist um skattskil fyrirtækisins S12 Bygginga á árunum 2009 og 2010. Einn mannanna var forstjóri S12 en hinir tveir gegndu stjórnarformennsku hvor á sínum tíma.

Forstjórinn var dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 44 milljóna króna sekt og stjórnarformennirnir í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi til að borga 22 milljónir hvor í sekt.

Töfðu líka málið sjálfir til einskis

„Rannsókn skattrannsóknarstjóra hófst í mars 2011 og var vísað til embætti sérstaks saksóknara 14. nóvember 2011. Af gögnum málsins má ráða að rannsókn embættisins hafi verið lokið um mitt ár 2012. Ákæra var síðan gefin út 10. apríl 2013. Hafa þessar tafir ekki verið skýrðar,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness.

Fram kemur að málið hafi síðan tafist enn frekar eftir að það kom fyrir dóm vegna fresta sem hinir ákærðu fengu til að afla gagna sem síðan hafa reynst enga þýðingu hafa.

„Þrátt fyrir það, með hliðsjón af því hversu langt er um liðið, þykir dóminum rétt að skilorðsbinda refsingu ákærðu þannig að hún falli niður að liðnum tveimur árum,“ segir í dóminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×