Gjaldeyrishöftin draga úr hagvexti og auka líkur á atgervisflótta Höskuldur Kári Schram skrifar 11. mars 2014 15:15
Gjaldeyrishöftin kostuðu íslenskt samfélag um 80 milljarða í útflutningstekjur á síðasta ári þegar horft til fyrirtækja innan alþjóðageirans. Hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands segir nauðsynlegt að ríkisstjórnin leggi fljótlega fram trúverðuga áætlun um afnám hafta en að öðrum kosti muni draga úr hagvexti og atgervisflótti aukast. Viðskiptaráð Íslands hefur lagt mat á áhrif gjaldeyrishaftanna á nýliðun og vöxt fyrirtækja innan alþjóðageirans. Samkvæmt þessu mati dróst útflutningur saman um 80 milljarða á síðasta ári. Sú upphæð jafngildir um einni milljón króna í gjaldeyri á hverja fjölskyldu landsins. Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur Viðskiptaráðs segir að gjaldeyrishöftin muni smám saman draga úr lífskjörum hér á landi. „Þetta kemur fram í því að hagvöxtur á Íslandi verður lægri. Það skapast færri hálaunastörf sem byggja á þekkingu, atvinnulífið verður einsleitara það verða færri tækifæri fyrir ungt fólk. Þannig að þetta getur stuðlað að atgervisflótta og bitnar fyrst og fremst á lífskjörunum,“ segir Björn. Björn segir mikilvægt að ríkisstjórnin leggi fram trúverðuga áætlun um afnám hafta. „Um leið og trúverðug áætlun um afnám hafta liggur fyrir þá er hægt að koma í veg fyrir frekara tjón. Áætlun sem byggir á því að allir aðilar innan hagkerfisins trúi því að þeir geti farið að fjárfesta aftur til að byggja upp starfsemi sína. Þess vegna er það einnig mikilvægt að ný áætlun um afnám hafta taki ekki bara á bönkum í slitameðferð heldur nái yfir alla aðila og sérstaklega þessi alþjóðafyrirtæki,“ segir Björn.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira