Líklega sinnepsgas í vopnum sem Íslendingar fundu í Írak Stefán Árni Pálsson skrifar 20. október 2014 19:50 visir/getty/skjáskot af vef rúv
Margt bendir til að vopnin sem íslensku sprengjusérfræðingarnir fundu í Írak árið 2003, hafi innihaldið sinnepsgas, eins og haldið var í fyrstu. Sprengjusérfræðingur segist alltaf hafa furðað sig á því að Bandaríkjaher hafi eytt þeim eins og efnavopnum, eftir að hafa fullyrt að þau væru það ekki. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.New York Times greindi frá því í síðustu viku að bandarísk hermálayfirvöld hefðu um árabil leynt upplýsingum um þúsundir efnavopna sem fundist hefðu í Írak frá innrás þeirra í landið árið 2003. Jónas Þorvaldsson, sprengjusérfræðingur, var gestur í þættinum Kastljós á RÚV í kvöld en hann var við störf í Írak árið 2004. Jónas segir upplýsingarnar í grein New York Times lýsa aðstæðum sem hann upplifði sjálfur í Írak. Jónas fann sprengjur sem hann og sprengjusérfræðingar Dana og Breta rannsökuðu. Niðurstaða þeirra var sú að í sprengjunum væri sinnepsgas. Bandaríski herinn taldi sprengjurnar þó ekki innihalda efnavopn en að sögn Jónasar fékkst ekki skýring á þeirri niðurstöðu. Hann segir það því hafa komið sér á óvart þegar yfirmenn bandaríska hersins létu eyða sprengjunum, eins og þær innihéldu efnavopn.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Fleiri fréttir Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Sjá meira