Viðburðaríkt ár á íslenskum hlutabréfamarkaði Samúel Karl Ólason skrifar 6. janúar 2014 10:54 Mynd/GVA „
Úrvalsvísitalan hækkaði um 4,3% í fyrstu viku ársins, mest hækkuðu bréf Icelandair (+6,1%), Haga (+4,9%) og Fjarskipta (+4,2%). Einungis bréf í einu félagi stóð í stað (N1),“ segir í Vikubyrjun, vikuriti Hagfræðideildar Landsbankans. Einnig kemur fram að krónan hafi styrkst gegn Evrunni um tæpt prósent, en hreyfst minna á móti Bandaríkjadal og breska pundinu. „Brúnin lyftist aðeins á íslenskum neytendum í desember, en væntingavísitala Gallup mældist 78,6, í samanburði við 68,4 í mánuðinum á undan.“ Lánamál ríkisins gáfu í vikunni út ársáætlun og ársfjórðungsáætlun fyrir 1. ársfjórðung, þar sem fram kemur að heildarútgáfa ríkisbréfa verði um 50 milljarðar króna á árinu. Þar af 10-20 milljarða á fyrsta ársfjórðungi. Þá er hrein útgáfa ríkisbréfa á árinu áætluð um 25 milljarðar króna. „Munurinn á heildar- og hreinni útgáfu skýrist að mestu á því að RIKB 14 er á gjalddaga á árinu. Áætlað er að staða ríkisvíxla verði 30 ma. kr. í árslok 2014.“ Fyrsta útboð ríkisbréfa á árinu er fyrirhugað á föstudaginn næstkomandi. „Árið 2013 var viðburðarríkt á íslenskum hlutabréfamarkaði. Úrvalsvísitalan hækkaði talsvert á árinu og ljóst að áhuginn á hlutabréfum sem fjárfestingakosti hefur aukist.“ Þrjú ný félög voru skráð í Kauphöllina og þar af komu tvö ný inn í Úrvalsvísitöluna. Jafnfram voru minni umsvif á skuldabréfamarkaði. „Á myndinni sjást helstu verðbreytingar á árinu 2013. Icelandair bar höfuð og herðar yfir önnur félög í hækkunum. Fór gengi félagsins úr 8,2 í 18,2 frá upphafi til loka ársins sem er 122% hækkun.“ Mesta lækkun ársins var hjá Fjarskiptum sem lækkaði um 16 prósent.Mynd/Hagfræðideild LB
Mest lesið Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Viðskipti innlent Segir leigusala hækka leigu í takt við skerðingu Neytendur Fleiri fréttir S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sjá meira