Viðskipti innlent

Svíar borga minna en við

Haraldur Guðmundsson skrifar
Þann 1. júní síðastliðinn tóku gildi lög sem leiddu meðal annars til lækkunar á áfengisgjaldi. Verð á einum hálfs lítra bjór, sem er fimm prósent að styrkleika, lækkaði þá um eina krónu.
Þann 1. júní síðastliðinn tóku gildi lög sem leiddu meðal annars til lækkunar á áfengisgjaldi. Verð á einum hálfs lítra bjór, sem er fimm prósent að styrkleika, lækkaði þá um eina krónu. Vísir/Pjetur
Bjórinn Bríó er um hundrað krónum ódýrari í áfengisverslun sænska ríkisins en í verslunum ÁTVR. Hér kostar lítil flaska af bjórnum 329 krónur en 233 krónur í Svíþjóð.

Bríó hefur verið seldur í áfengisverslun sænska ríkisins, Systembolaget, frá síðustu mánaðamótum. Hann er bruggaður hér á landi af Borg brugghúsi sem er í eigu Ölgerðarinnar.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir það líklegt að áfengisgjöld og aðrir skattar séu lægri í Svíþjóð sem skýri verðmuninn á milli landanna.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
„Ég held að álagningin sé sambærileg á milli landa á heildsölustiginu en eftir því sem ég best veit eru meiri álögur hér en í flestum öðrum löndum. Heilt yfir fara tveir þriðju af útsöluverði bjórs til ríkisins með einum eða öðrum hætti. Það felst í áfengisgjöldum, virðisaukaskatti og álagningu ÁTVR,“ segir Andri og heldur áfram:

„Ef við tökum ýktasta dæmið þá fara um 90 prósent af verði Tindavodka til ríkisins. Ég held að ég geti fullyrt að það sé ekkert annað ríki með álíka álögur á áfengi. Þetta gerir það að verkum að verð á milli landa er ekki samanburðarhæft.“

Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts brugghúss, sagði í Fréttablaðinu í október síðastliðnum að áfengisgjöld ríkisins hefðu ýtt fyrirtækinu út í aukinn útflutning. Markaðurinn hér heima væri orðinn hamlandi sökum skattpíningar.

Andri segir áfengisgjöldin ekki hafa stuðlað að auknum útflutningi Ölgerðarinnar.

„Útflutningsáætlun okkar byggir eingöngu á okkar áhuga á að vaxa og þessir bjórar frá Borg eru að vekja mikla athygli.“

Bríó var þróaður í samstarfi við Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Verðmunurinn kom Kormáki Geirharðssyni, eiganda Ölstofunnar, á óvart þegar blaðamaður hafði samband við hann.

„Ég vissi ekkert af þessu og finnst þetta skrítið. Ég vildi gjarnan að Bríó væri hundrað krónum ódýrari hérna heima,“ segir Kormákur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×