Viðskipti innlent

30% starfsmanna gefa upp lykilorð sitt og notendanafn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tölvuárásum fer fjölgandi í heiminum og er Ísland þar engin undantekning.
Tölvuárásum fer fjölgandi í heiminum og er Ísland þar engin undantekning. Vísir/Gettty
Auðvelt er fyrir tölvuglæpamenn að brjótast inn í tölvur starfsmanna hjá íslenskum fyrirtækjum skv. niðurstöðum rannsóknar sem unnin var á vegum öryggisfyrirtæksins Syndis. Tölvuglæpamenn blanda gjarnan saman sálfræði og tækni í glæpum sínum sem sést til að mynda í því að 30% starfsmanna munu gefa upp notendanafn og lykilorð í gegnum falsaðar innskráningarsíður á samfélagsmiðlum.

 

Ítarlega verður fjallað um niðurstöður rannsóknarinnar á haustráðstefnu Advania sem haldinn verður nk. föstudag. Á meðal fyrirlesara á ráðstefnunni er fulltrúi frá Bandarísku alríkislögreglunni, FBI, sem mun fjalla um tölvuglæpi, þær ógnir sem heimurinn stendur frammi fyrir vegna þeirra og hvernig vinna má gegn þeim.

Einnig verður fjallað um þrívíddarprentun á ráðstefnunni og hvernig hún getur t.d. gagnast læknum við undirbúning flókinna aðgerða. Fjöldi annarra fyrirlestra verður á ráðstefnunni, m.a. frá Google, Samsung, CCP og Plain Vanilla. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×