Viðskipti innlent

Yfir 40 Íslendingar starfa á borpöllum við Noreg

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá vinnslupallinum Draupni í Norðursjó.
Frá vinnslupallinum Draupni í Norðursjó. Statoil/Harald Pettersen.
Meðallaun á olíuborpöllum á landgrunni Noregs voru um 1,2 milljónir íslenskra króna á mánuði árið 2012. Þetta sýnir ný skýrsla sem rannsóknastofnun háskólans í Stafangri, IRIS, hefur gert fyrir samtök norska olíuiðnaðarins. Meðalárslaun voru 774 þúsund norskar krónur eða sem nemur 14,5 milljónum íslenskra króna. 

Alls störfuðu um 24 þúsund manns á borpöllum við strendur Noregs, samkvæmt skýrslunni. Konur voru 12,5 prósent starfsmanna. Lágt hlutfall erlendra starfsmanna kemur á óvart. Norðmenn reyndust yfirgnæfandi, eða um 90 prósent starfsmanna, en um 10 prósent voru útlendingar. 

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í hópi erlendra starfsmanna, um 400 talsins, Danir voru um 300, Svíar 270 og Bretar um 220. Íslendingar reyndust vera 43, álíka margir og Finnar, og 24 Færeyingar voru skráðir í vinnu á borpöllum. 

Aðeins voru teknir þeir starfsmenn sem vinna á borpöllum og öðrum sérbyggðum mannvirkjum vegna olíuvinnslu úti á sjó. Ekki voru taldir með þeir sem starfa á þjónustuskipum við borpallana, né þeir sem gegna í störfum í landi sem tengjast borpöllunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×