Grímur Sæmundsen kjörinn formaður SAF Finnur Thorlacius skrifar 11. apríl 2014 11:15 Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lónsins.
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram á Grand Hótel í gær. Fundurinn var kraftmikill og fjölmennur, en þetta var fjölmennasti aðalfundur í sögu samtakanna. Nýr formaður var kjörinn á fundinum, en Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins hlaut 55% atkvæða. Mótframbjóðandi hans, Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Iceland Excursions-Allrahanda, hlaut 45% atkvæða. Í fyrsta sinn í sögu SAF var kjörið á milli tveggja aðila um formann samtakanna. Metþátttaka var á fundinum, en um 300 manns tóku þátt í fundarstörfunum í gær. Þá var ný stjórn kjörin. Hana skipa Bergþór Karlsson, framkvæmdastjóri Hölds/Bílaleigu Akureyrar, Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, Eva maría Þórarinsdóttir Lange, framkvæmdastýra Pink Iceland, Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Hvalaskoðunar Reykjavíkur og Anna G. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri AGMOS ehf. Ýmsar ályktanir voru samþykktar á aðalfundinum og fara þær hér. Samfara mikilli aukningu í fjölda ferðamanna og tekjum af þeim hefur hið opinbera ekki lagt fram nauðsynlegt fjármagn til að tryggja að greinin fá áfram vaxið og dafnað og geti þannig til langs tíma skilað skatttekjum til góða fyrir þjóðfélagið í heild sinni. •Aðalfundur SAF skorar á stjórnvöld að ferðaþjónustan fái, í hlutfalli við mikilvægi greinarinnar fyrir íslenskt efnahagslíf, fjármagn til að tryggja að alvöru hagtölugerð verði framkvæmd auk þess sem stóraukið fé verði sett í rannsóknir á ferðaþjónustu •Aðalfundur SAF skorar á stjórnvöld að vinna strax að framtíðarlausn á fjármögnun á uppbyggingu og rekstri fjölsóttra ferðamannastaða. •Aðalfundur SAF skorar á stjórnvöld að búa íslenskri ferðaþjónustu samkeppnishæf rekstrarskilyrði á við það sem best gerist í samkeppnislöndunum. •Aðalfundur SAF skorar á stjórnvöld að tryggja að Rammaáætlum sé virt, þannig að ekki sé hægt að taka aftur til skoðunar þá virkjunarkosti sem nú þegar hefur verið raðað í vendarflokk.Aðalfundur SAF, ítrekar fyrri gagnrýni á hvalveiðistefnu stjórnvalda. Fundurinn leggur áherslu á þá efnahagslegu áhættu sem tekin er með hvalveiðum á hvalaskoðunarsvæðum þar sem staðbundin áhrif hrefnuveiða á samsetningu stofns tegundanna er ekki þekkt en gæf/forvitin dýr eru auðveld skotmörk, hvort heldur er fyrir myndavél eða skutul. Fundurinn skorar því á stjórnvöld að a) Fylgja niðurstöðum ráðgjafandi nefndar Sjávarútvegsráðherra um stefnumótun um vernd og veiðar á hvölum sem lagðar voru til þann 8. maí 2013b) Draga til baka reglugerð Sjávarútvegsráðherra dagsett 5.7.2013 sem færði bannsvæði hvalveiða í Faxaflóa til baka til þess horfs sem markað var af reglugerð 414/2009.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira