Jónas Fr: "Ágætlega hófstillt umfjöllun“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. apríl 2014 10:49 Jónas Fr. Jónsson lögfræðingur var forstjóri Fjármálaeftirlitsins frá 2005 - 2009. Hann sagði af sér embætti á sama tíma og Björgvin G. Sigurðsson þáverandi viðskiptaráðherra, á vordögum 2009. „
Mér finnst þetta vera í sjálfu sér ágætlega hófstillt umfjöllun,“ segir Jónas Fr. Jónsson fyrrverandi forstjóri FME um þann hluta rannsóknarskýrslu sparisjóðanna er snýr að FME. Kafli rannsóknarnefndar Alþingis um sparisjóðina sem snýr að Fjármálaeftirlitinu og eftirliti þess með starfsemi sparisjóðanna er að einhverju leyti án niðurstöðu, eða ófullnægjandi. Rannsóknarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að FME hafi í sumum tilvikum staðið sig vel og í mörgum tilvikum hafi sparisjóðirnir farið eftir ábendingum stofnunarinnar. Í einhverjum tilvikum, eins og þegar kom að áhættustýringu, svöruðu sparisjóðirnir fyrir sig og gátu stundum fylgt ábendingum en í öðrum ekki. Í skýrslunni segir: „Að mati rannsóknarnefndarinnar er vandkvæðum bundið að benda á einstök atriði þar sem Fjármálaeftirlitið sinnti ekki lögbundnu hlutverki sínu við eftirlit með starfsemi sparisjóða.“ (2. bindi, bls. 103). Úttektir Fjármálaeftirlitsins á stóru sparisjóðunum á árunum 2007 og 2008 leiddu í ljós ýmsar brotalamir í starfi áhættustýringar sparisjóðanna en helstu aðfinnsluefni FME voru þau að deildirnar væru ekki nógu stórar, álagspróf og aðrar athuganir væru gerðar of sjaldan og næðu ekki til nógu margra þátta í starfseminni. Fram kemur í skýrslu Alþingis um sparisjóðina, sem kom út í gær, að í svörum sparisjóðanna við skýrslum FME hafi viðbrögðum þeirra lýst en þau fólust iðulega í tíðari athugunum og fjölgun starfsmanna. Áhættustýringu ábótavant hjá Sparisjóðnum í Keflavík Reglur um áhættustýringu skorti hjá Sparisjóðnum í Keflavík (SpKef) og voru viðbrögð hans við aðfinnslum FME að móta innri reglur og endurskoða verkferla. FME gerði líka athugasemdir við galla á áhættustýringu Sparisjóðs Mýrasýslu. Viðbrögð sparisjóðsins voru samkvæmt skýrslunni að stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu hefði verið „kunnugt um ágalla á áhættustýringu og hefði hún reynt að fá starfsmenn með næga þekkingu til að taka að sér störf í áhættustýringu og það hefði gengið illa.“ Ekki fylgir sögunni í skýrslunni hvort FME hafi bara látið þar við sitja og hvort sparisjóðurinn hafi ekki bætt úr og ráðið fólk í áhættustýringu. Rannsóknarnefndin um sparisjóðina kemst að þeirri niðurstöðu að í flestum tilvikum hafi ábendingum FME verið fylgt. Hins vegar hafi áhættustýringu í sparisjóðunum almennt verið ábótavant. „Fámennar deildir höfðu ekki næga yfirsýn yfir áhættuþætti starfseminnar.“Ágætlega hófstillt umfjöllun Jónas Fr. Jónsson var forstjóri FME á þessum tíma. „Mér finnst þetta vera í sjálfu sér ágætlega hófstillt umfjöllun. Miklu hófstilltari en fyrri rannsóknarskýrsla Alþingis um fall viðskiptabankanna,“ segir Jónas í samtali við fréttastofu 365. Nokkur gagnrýni kemur á endurskoðendur í skýrslunni, bæði innri og ytri endurskoðun. Ytri endurskoðendur eru opinberir sýslunarmenn, rétt eins og skiptastjórar. Finnst þér að ytri endurskoðendur sparisjóðanna hafi ekki staðið undir þeim kröfum sem gera mátti til þeirra? „Það er annarra að meta það,“ segir Jónas. Mikil starfsmannavelta var hjá FME í tíð Jónasar, eins og rakið er ítarlega í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall viðskiptabankanna sem kom út 12. apríl 2010. Í þeirri skýrslu er rakið hvernig margar rannsóknir eftirlitsins strönduðu eða frestuðust þar sem rannsakendur, sérfræðingar sem voru að fylgjast með viðskiptabönkunum, voru ráðnir í vinnu til þeirra. Þá óx FME ekki í réttu hlutfalli við fjármálakerfið. „(E)r ljóst að Fjármálaeftirlitið, sem bar meginábyrgð á eftirliti með bönkunum, óx ekki í samræmi við vöxt þeirra og starfshættir þess fylgdu ekki eftir þeim öru breytingum sem urðu á starfsháttum bankanna,“ segir þar.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira