27% hlutur seldur í HB Granda fyrir 13,6 milljarða Stefán Árni Pálsson skrifar 11. apríl 2014 18:00 mynd/eiríkur
Almennu útboði á hlutabréfum í HB Granda hf. lauk í gær, þar sem um 3.000 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf fyrir samtals um 23 milljarða króna en þetta kemur fram í frétt frá Arion banka. Útboðið nemur 27% af útgefnum hlutum í HB Granda og er söluandvirði þess 13,6 milljarðar króna. Endanlegt útboðsgengi er 27,7 krónur á hlut í báðum tilboðsbókum útboðsins. Miðað við þetta gengi nemur virði allra hlutabréfa í félaginu um 50 milljörðum króna. Hlutirnir verða seldir til um 2.500 fjárfesta, en ekkert kemur í hlut þeirra sem buðu undir 27,7 krónur á hlut. Um 5% af útgefnum hlutum HB Granda verður úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig í tilboðsbók A fyrir kaupum að andvirði 0,1-25 milljónum króna og hverjum aðila úthlutað hlutabréfum að andvirði um 0,1-13,3 milljónum króna. Um 22% af útgefnum hlutum félagsins verður úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig í tilboðsbók B fyrir kaupum að andvirði 15 milljónum króna eða meira og verða áskriftir á og yfir útboðsgengi óskertar. Stærsta úthlutun í útboðinu nemur 5% hlut til eins fjárfestis. „Ég býð nýja hluthafa velkomna í hóp þeirra 570 hluthafa sem fyrir eru hjá félaginu og fagna þeim áfanga að sjá HB Granda á Aðalmarkaði á ný, en félagið hefur verið á íslenskum verðbréfamarkaði frá árinu 1992. Ég fagna því trausti sem fjárfestar sýna okkur með útboðinu, en framundan eru spennandi tímar hjá félaginu með breyttum áherslum í rekstri samhliða endurnýjun skipaflotans,“ Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. „Það er gleðilegt að hafa átt forgöngu um að veita íslenskum almenningi tækifæri til að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Það er gert í samkomulagi við aðra stóra hluthafa. Við erum ánægð með það verð sem við fáum fyrir þann hlut sem við seljum í útboðinu en að sama skapi erum við ánægð með að eiga áfram hlut í félaginu, enda höfum við mikla trú á félaginu sem er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira