Viðskipti innlent

Útlenskt tímarit segir Landsbankann bestan

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Höfuðstöðvar Landsbankans í Reykjavík.
Höfuðstöðvar Landsbankans í Reykjavík. Fréttablaðið/Rósa
Alþjóðlega fjármálatímaritið Global Finance magazine hefur valið Landsbankann sem besta bankann á Íslandi. Tilkynnt var um valið í New York síðustu viku, að því er fram kemur í tilkynningu Landsbankans.

„Global Finance greinir frá vali sínu eftir að hafa haft náið samráð við bankamenn, starfsmenn á fjármálamarkaði og greinendur um allan heim. Við matið koma til álita fjárhagslegir þættir sem hægt er að mæla nákvæmlega, jafnt og aðrir þættir sem byggja fremur á huglægu mati,“ segir í tilkynningunni, en til viðbótar er Global Finance í fyrsta sinn sagt byggja val sitt á könnun meðal lesenda blaðsins. 

Sjá nánari upplýsingar um verðlaunin á vef tímaritsins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×