Hagsjá: Spáir óbreyttum stýrivöxtum 8. maí 2013 10:57
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum í maí og að þar ráði mestu óvissan um myndun nýrrar ríkisstjórnar og hvað hún ætli sér í ríkisfjármálum á kjörtímabilinu. Í Hagsjá deildarinnar segir að eins og oft áður togast á rök fyrir bæði hækkun og lækkun vaxta. Það sem helst styður vaxtalækkun er að verðbólgan hefur hjaðnað töluvert á síðustu mánuðum og mælist nú 3,3%, sem er vel innan efri vikmarka verðbólgumarkmiðsins. Lægri verðbólga en óbreyttir vextir þýðir að öðru óbreyttu að raunstýrivextir hafa hækkað og aðhald peningastefnunnar því aukist á þann mælikvarða. Þá hefur gengi krónunnar styrkst verulega frá áramótum sem boðar gott fyrir þróun verðbólgunnar á komandi mánuðum, þ.e.a.s. ef styrkingin gengur ekki jafnhart aftur Það sem gæti valdið vaxtahækkun, og ef til vill meiri áhyggjum, er óvissa um stefnuna í ríkisfjármálum á nýju kjörtímabili. Þeir flokkar sem nú ræða saman um myndun ríkisstjórnar höfðu báðir uppi loforð sem að öðru óbreyttu gætu falið í sér töluverða tilslökun í ríkisfjármálum með tilheyrandi verðbólguhvetjandi áhrifum. Verði fullar efndir á þeim loforðum sem snúa að skattalækkunum, skuldaniðurfellingum og kjaraleiðréttingum, er ljóst að sjálfstæð peningastefnunefnd yrði að bregðast hart við með auknu aðhaldi í peningastefnunni. Peningastefnunefnd mun birta ákvörðun sína þann 15. maí.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira