Viðskipti innlent

Tekjutap OR verður milljarður til 2015

Svavar Hávarðsson skrifar
Þegar er ljóst að milljarður er tapaður en þá á eftir að reikna inn árið 2015. Gufulögnin kostar 2,6 milljarða.
Þegar er ljóst að milljarður er tapaður en þá á eftir að reikna inn árið 2015. Gufulögnin kostar 2,6 milljarða. fréttablaðið/vilhelm
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt fyrir sitt leyti að gufulögn verði lögð frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar. Fyrir liggur að kostnaður Orkuveitunnar af skertri vinnslugetu virkjunarinnar í ár og árið 2014 nemur milljarði króna. Fáist samþykki eigenda mun leiðslan verða tilbúin til notkunar síðla árs 2015.

Fyrirhuguð tenging Hellisheiðarvirkjunar við borholur í Hverahlíð kom til umfjöllunar í borgarráði á fimmtudag. Á fundi stjórnar Orkuveitunnar 29. ágúst var lögð fram sú tillaga að Bjarna Bjarnasyni forstjóra yrði falið að ráðast í tengingu Hellisheiðarvirkjunar, að því gefnu að öll leyfi fáist og ýtarleg kostnaðaráætlun sýni fram á hagkvæmni framkvæmdarinnar.

Í greinargerð sem lögð var fram í borgarráði á fimmtudag kemur fram að tekjutap og kostnaðarauki Orkuveitunnar á árinu 2013 vegna skertrar framleiðslugetu á Hellisheiði er talinn munu nema 300 milljónum króna. Í tillögu að fjárhagsáætlun fyrirtækisins fyrir árið 2014, sem er í vinnslu, verður gert ráð fyrir skertum sölutekjum af rafmagni og auknum kostnaði vegna orkukaupa sem nemur um 700 milljónum króna til viðbótar.

Frekara tap verður árið 2015, enda verður gufulögnin ekki tilbúin til notkunar fyrr en síðla það ár, tefjist verkið ekki.

Verkáætlun gerir nú ráð fyrir að heildarkostnaður við verkið verði 2,6 milljarðar króna, og skiptist þannig að 670 milljónir falla á næsta ár og 1.665 milljónir á árið 2015.

Þessi tillaga var samþykkt af öllum stjórnarmönnum að undanskildum fulltrúa Vinstri grænna, Sóleyju Tómasdóttur. Hún lét bóka að hún fallist ekki á þessa lausn við vanda virkjunarinnar. Hún stuðli að frekari ágengri nýtingu á svæðinu og „enn frekari tilraunastarfsemi til viðbótar við allt of hraðar framkvæmdir á undanförnum árum og áratugum“. Hún vill frekar að Orkuveitan leiti leiða til að draga úr raforkuframleiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×